HEILDSÖLUSKILMÁLAR DI DINO BROTHERS
SKILAFRESTUR & ENDURGREIÐSLA
Kaupanda er heimilt að skila vöru innan 14 daga frá kaupdegi eða afhendingu, að því gefnu að varan sé ónotuð, í upprunalegu ástandi og umbúðum, og að kvittun fylgi með.
Skilaréttur gildir ekki um útsöluvörur, notaðar eða opnaðar vörur né sérpantanir.
Ef vara er skilað eftir að útsala hefst, miðast endurgreiðsla við útsöluverð vörunnar.
Endurgreiðsla fer fram þegar skilyrði eru uppfyllt og varan hefur verið móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Komi upp galli er hvert mál metið sérstaklega. Ef ágreiningur rís um galla er hlutlaus þriðji aðili fenginn til mats. Reynist galli vera til staðar er boðið upp á viðgerð, sambærilega vöru, afslátt eða endurgreiðslu, eftir atvikum.
Kaupandi hefur allt að 2 ár til að leggja fram kvörtun vegna galla. Sé um vöru með verulega lengri endingartíma að ræða getur fresturinn numið allt að 5 árum frá afhendingu, í samræmi við lög um neytendakaup nr. 48/2003.
AFHENDING & SENDINGAR
Pantanir sem berast utan opnunartíma eru afgreiddar næsta virka dag.
Afhendingartími er að jafnaði 1–5 virkir dagar eftir að greiðsla hefur borist.
Afhending fer fram innan höfuðborgarsvæðisins og nágrennis með eigin dreifingu, en utan þess með dreifingaraðila Póstsins.
Sé vara í innkaupum eða á leið til landsins getur afhendingartími verið 1–5 vikur. Á stórum tilboðsdögum getur afgreiðslutími einnig lengst tímabundið.
Heimsending
-
Frí heimsending fyrir pantanir yfir 35.000 kr.
-
Pantanir undir 35.000 kr.:
-
Höfuðborgarsvæðið: 2.990 kr.
-
Utan höfuðborgarsvæðis: 8.990 kr.
-
Heimsendingarverðskrá gildir til ársloka 2026.
GREIÐSLUR & NETGREIÐSLUR Í VEFVERSLUNNI
Allar greiðslur í vefverslun fara fram í gegnum öruggar og viðurkenndar greiðslugáttir.
Di Dino Brothers ber ekki ábyrgð á truflunum sem rekja má til greiðsluþjónustuaðila eða fjármálastofnana.
GREIÐSLUDREIFING
Sé heildarupphæð reiknings 80.000 kr. eða hærri, býðst viðskiptavinum greiðsludreifingu allt að 4 mánuði,
samkvæmt samkomulagi. Greiðsludreifing er verðtryggð samkvæmt vísitölu neysluverðs á tímabilinu.
FLUTNINGSÞJÓNUSTAN - KYNNING
Di Dino Brothers býður upp á faglega flutningsþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki,
með áherslu á áreiðanleika, skilvirkni og ábyrg vinnubrögð.
ÞJÓNUSTA & ÁBYRGÐ (FLUTNINGAR)
Með bókun flutningsþjónustu samþykkir viðskiptavinur eftirfarandi:
Upplýsingar & framkvæmd
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að veita réttar upplýsingar um flutning, þar á meðal stærð, þyngd og fjölda hluta.
Flutningstími er ákveðinn í samráði, en Di Dino Brothers ber ekki ábyrgð á töfum vegna óviðráðanlegra
aðstæðna (veður, umferð, bilanir o.þ.h.).
Afbókanir
Afbókun skal berast með minnst 24 klst. fyrirvara.
Afbókun með styttri fyrirvara getur leitt til allt að 990 kr. gjalds.
Tjón & tryggingar
Tjón skal tilkynna tafarlaust við afhendingu.
Di Dino Brothers ber eingöngu ábyrgð á beinu tjóni sem rekja má til vanrækslu starfsmanna, en ekki óbeinu eða afleiddu tjóni.
VERÐ & GREIÐSLUSKILMÁLAR
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) og geta tekið breytingum í samræmi við verðlagsþróun.
Greiðsla fer fram við afhendingu nema annað sé samið sérstaklega.
BREYTINGAR Á SKILMÁLUM
Di Dino Brothers áskilur sér rétt til að uppfæra skilmála hvenær sem er.
Breytingar taka gildi við birtingu á heimasíðu félagsins.
%20(1)_edited_edited(1).png)

